Ágæt gamanmynd en samt ekki jafn góðar og aðrar Jack Nicholson myndir. Henry Moon (Jack Nicholson) er dæmdur til hengingar fyrir þriggja gráðu brot. En kona að nafni Julia (Mary Steenburgen)...
Goin' South (1978)
"For Henry Moon, life was just beginning."
Henry Moon er gripinn fyrir lögbrot þegar hann er á flótta undan réttvísinni og stefnir á Mexíkó, en hesturinn hans gefst upp.
Bönnuð innan 6 ára
OfbeldiSöguþráður
Henry Moon er gripinn fyrir lögbrot þegar hann er á flótta undan réttvísinni og stefnir á Mexíkó, en hesturinn hans gefst upp. Hann uppgötvar að í smábænum sem hann er færður til eru í gildi lög frá því eftir borgarastyrjöldina í Bandaríkjunum, sem segja til um það að sérhver einhleyp kona, eða ekkja, getur bjargað honum frá því að lenda í snörunni, með því að giftast honum. Julia Tate vantar mann til að hjálpa sér að vinna í námugreftri og giftist honum. Lögreglustjórinn segir Moon að ef hann yfirgefur Juliu, hafi það alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir hann. Hin nýgiftu hjón byrja nú að reyna að treysta samband sitt, sem gæti reynst þrautin þyngri því þau eiga ekkert sameiginlegt.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur

Verðlaun
Mary Steenburgen var tilnefnd til Golden Globe fyrir bestu frumraun í bíómynd.

















