A Soldier's Daughter Never Cries (1998)
"The city of lights. A famous American author and the decade that changed a generation...forever."
Skálduð saga sem byggð er á fjölskyldulífi rithöfundarins James Jones, sem í myndinni er látinn heita Bill Willis, fyrrum stríðshetja og nú farsæll rithöfundur sem...
Öllum leyfðSöguþráður
Skálduð saga sem byggð er á fjölskyldulífi rithöfundarins James Jones, sem í myndinni er látinn heita Bill Willis, fyrrum stríðshetja og nú farsæll rithöfundur sem augljóslega drekkur of mikið og er byrjaður að finna fyrir heilsufarsvandamálum. Hann býr í Frakklandi ásamt eiginkonu, dóttur og ættleiddum syni, og þau fara ótroðnar slóðir í lífinu sem gerir þau utangarðs og á skjön við aðra. Þau tala fyrir frjálsum ástum og dóttir hans byrjar snemma að stunda kynlíf, sem kemur í bakið á henni þegar þau flytja til Hanover í Bandaríkjunum. Kynverund hennar er ekki eðlileg miðað við hinn dæmigerða bandaríska ungling og hún fær slæmt orð á sig og er útskúfað. Á sama tíma er bróðir hennar að glíma við eigin innra umrót, sem nær til þess þegar hann var yfirgefinn í æsku, og eini staðurinn sem hann getur eitthvað tjáð sig er innan veggja heimilisins.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Gagnrýni notenda
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráEngar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!
Framleiðendur















