Náðu í appið
Here on Earth

Here on Earth (2000)

1 klst 36 mín2000

Þrjú ungmenni, ríkur násmaður, stúlka með erfiðan bakgrunn og kærasti hennar, hittast óvænt eitt örlagaríkt sumar.

Rotten Tomatoes18%
Metacritic25
Deila:
Here on Earth - Stikla
18 áraBönnuð innan 18 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiHræðslaHræðsla

Söguþráður

Þrjú ungmenni, ríkur násmaður, stúlka með erfiðan bakgrunn og kærasti hennar, hittast óvænt eitt örlagaríkt sumar. Kelley Morse, er kotroskinn og framhleypinn og myndi að öllu jöfnu aldrei hitta íbúa í litlum bæ sem er nálægt fína einkaskólanum hans. En þegar hann fer í bíltúr á gljáfægða Benzinum sínum, þá hittir hann nokkra bæjarbúa, þar á meðal Jasper. Kelley og Jasper fara í hættulegan kappakstur, á meðan einþykk kærasta Jasper, Samantha, horfir á, en þetta endar með því að vinsæll veitingastaður sem móðir Samantha á og rekur, stórskemmist. Kelley og Jesper eru dæmdir til að endurbyggja veitingastaðinn í refsingarskyni. Það er ekki bara að þetta sé að eyðileggja sumarfríið hjá Kelley, heldur þarf hann að gista á heimili keppinautar síns, Jasper. Kelley byrjar að aflplána refsinguna, en neitar að eiga nein samskipti við Jasper og foreldra hans. Þegar Kelley hittir Samantha á ný, þá heillast hún af honum á móti. Jasper er allt annað en kátur með þetta, enda hefur hann þekkt Samantha nánast allt sitt líf. Þessar nýju tilfinningar og rómantíski þríkantur, er byrjunin á nýju ferli fyrir þau Kelley, Samantha og Jasper, en þau þurfa á endanum að standa frammi fyrir stórum spurningum og uppgötvunum varðandi sjálf sig og hvert annað.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Mark Piznarski
Mark PiznarskiLeikstjóri

Aðrar myndir

Michael Seitzman
Michael SeitzmanHandritshöfundur

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Friendly Productions
Fox 2000 PicturesUS