The Second Jungle Book: Mowgli (1997)
Skógarlíf 2, Jungle Book 2
Sagan gerist í Indlandi árið 1880.
Öllum leyfðSöguþráður
Sagan gerist í Indlandi árið 1880. Tígrisdýrið Sher Khan drepur föður hins unga Mowgli, sem er tekinn í fóstur af úlfahjörð. Hann elst upp í frumskóginum, og vingast við svarta pardusinn Bagheera, svartbjörninn Baloo, og bróður hans Greywolf. Þegar drengurinn verður 10 ára gamall, þá fer hann í veröld manna og snýr heim með tamdan apa. Úlfarnir neita að taka við honum aftur, og hann verður úrhrak. Hann er núna einn á báti en með vini sína með sér, þegar maður að nafni Harrison vill ræna honum og fara með hann til Bandaríkjanna og selja hann í sirkus. Þá stendur honum ógn af Sher Khan, sem vill gæða sér á þessum unga dreng, auk þess sem frændi hans Baldev, vill drepa hann fyrir alla muni svo hann verði einn erfingi eftir bróður sinn, föður Mowgli.










