Maybe Baby (2000)
"When it Comes to having Children, everyone has a Position."
Sam og Lucy Bell eru hjón sem hafa það allt: þau eru myndarleg, þau njóta velgengni í starfi, og ástarlíf þeirra í miklum blóma.
Öllum leyfð
Kynlíf
BlótsyrðiSöguþráður
Sam og Lucy Bell eru hjón sem hafa það allt: þau eru myndarleg, þau njóta velgengni í starfi, og ástarlíf þeirra í miklum blóma. Það eina sem vantar er það sem þeim langar mest í - barn. Þau reyna allt hvað þau geta til að eignast barn: nýaldarfræði, nálastungur og öðruvísi kynlíf, en ekkert gengur. Brátt fer þetta að verða að þráhyggju og ástarlíf þeirra geldur fyrir það, en að lokum leita þau til sérfræðinga með vandamál sín. Á sama tíma fer Sam að verða óánægður í vinnu, og ákveður að skrifa leikrit, en fljótlega fær hann ritstíflu. Hippinn vinur hans, Druscilla, hvetur hann til að horfa inn á við, og þá fær Sam innblásturinn sem hann þurfti og ákveður að skrifa leikrit um par sem er að reyna að eignast barn. En Lucy hryllir við hugmyndinni og bannar honum að segja sögu þeirra. Ást þeirra er nú í hættu … en niðurstaðan gæti komið á óvart.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Myndir
Plaköt
Framleiðendur








