Þessi mynd er í stuttu máli um krakka sem vilja djamma öll kvöld. Hún er mjög fyndin og tónlistin er mergjuð í myndinni. Hún á fullkomlega skilið 4 stjörnur.
Human Traffic (1999)
"The Weekend has Landed!"
Myndin gerist í næturlífinu í Cardiff í Englandi á tíunda áratug síðustu aldar.
Bönnuð innan 16 ára
Kynlíf
Vímuefni
BlótsyrðiSöguþráður
Myndin gerist í næturlífinu í Cardiff í Englandi á tíunda áratug síðustu aldar. Fimm bestu vinir þurfa að leysa úr samböndum sínum og persónulegum vandamálum yfir helgi. Jip kallar sig ofsóknaróðan kynferðislega, og er hræddur um að hann sé getulaus. Lulu, félagi Jip, finnst menn ekkert spennandi. Nina hatar vinnuna sínu á skyndibitastaðnum, og maðurinn hennar, Koop, sem dreymir um að verða frábær hip-hop plötusnúður, hneigist til þess að verða sjúklega afbrýðisamur. Sá fimmti er Moff, en fjölskyldu hans líst ekkert á hegðun hans. Sagan hefst eftirmiðdaginn á föstudeginum, þar sem menn eru að undirbúa sig undir að fara út á lífið, og við fylgjumst með fimmenningunum í gegnum Ecstacy vímufyllta skemmtun í gegnum áfengislegið ástand á laugardagsmorgni, og svo í þynnkunni eftir helgina.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur













