Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Þrátt fyrir að hafa heyrt marga slæma dóma um The Fog ákváð ég samt að skella mér í smárabíó að sjá hana þar sem að hún er endurgerð af gamalli og góðri samnefndri mynd frá John Carpenter en hann er leikstjóri sem ég met mikið. Ég er ekki ánægður með útkomuna. Þessi útgáfa bara skortir allt andrúmsloft hinnar útgáfunnar og leikararnir eru ekki að standa sig(Smallville gaurinn er hræðilegur) ég meina í hinni myndinni höfðum við þó Adrienne Barbeau, Charles Cyphers og Jamie Lee Curtis. Þessi útgáfa má þó eiga það að hún er soldið gróf og útskýrir margt en það bara hreinlega bjargar ekki þessum ófrumleika og leiða sem umlykur myndina. Endirnum er líka talsvert breytt og að mínu mati til hins verra. Ein stjarna fær þessi útgáfa af The Fog. Vont að sjá svona. Ég veit ekki með ykkur en í framtíðinni ætla ég að forðast þetta rugl og horfa frekar á gömlu góðu John Carpenter útgáfuna.
Þetta er án efa lélegasta mynd sem mannkynið hefur gefið út, skil ekki hvernig framleiðendurnir gátu framleitt myndina ?, Ætli það hafi ekki verið bundið fyrir augun á þeim þegar þeir skoðuðu myndina... allaveganna er þessi mynd um að einhverja morðóða þoku sem er að ráðast á saklaust fólk á eyju og rafmagnið dettur af sumstaðar þegar þokan kemur.. gef henni rétt svo hálfa stjörnu fyrir að Smallville gaurinn er eini gaurinn sem stóð sig vel..
Tja ég veit ekki hvað skal segja
Það er nú bara janúar og hún er strax komin á tilnefningarlistann minn fyrir verstu mynd ársins.
Þessi mynd er enganvegin að gera sig, söguþráðurinn er óspennandi og í raun mjög heimskulegur.
Ég fór bara á hana í bíó með því hugarfari að þetta væri allveg hevy hryllingsmynd. En allt kom fyrir ekki, þessi mynd er bara eintómt bull og allt lélegt við hana. Ég sé eftir 800 kallinum sem ég boraði fyrir miðann á hana. Mæli alls ekki með henni. Eina ástæaðn fyrir að ég gef henni þó þessa einu stjörnu að það voru flottar gellur í henni.
Þetta er endurgerð á kvikmynd sem að misheppnaðist gjörsamlega, hef nú ekki séð þá upprunarlegu en það er allt tilgangslaust við þessa mynd.
Fyrir alla þá sem bíða spennt fyrir að sjá þessa mynd í bíó og hugsa geggjuð hryllingsmynd, þá hafa þau því miður rangt fyrir sér. Þessi mynd er líklegust hjá mér að hreppa verstu mynd ársins hjá mér og samt er bara januar. OK OK þetta HEFÐI getað orðið svona ágætis hryllingsmynd með smá frumleika að hafa þoku sem svokallað draug eðavonda kallinn en hvernig handritið er þá er þetta bara kjánaleg mynd og er heimskuleg. Ég átti erfitt að sitja í salnum yfir þessari mynd hún fór bara í taugarnar á mér. Ég reyndi fyrstu 15min af myndinni að gefa henni séns en bara það fór í mig hversu illa þau léku þá meina ég sérstaklega Smallville gaurinn sem ég segi tvímælalaust hafi verið besti leikarinn þarna. Að vísu hafa hryllingsmyndirnar þróast og nú er málið að láta bregða fólk(svona 12ára gelgjustelpum) í stað fyrir að hafa góðan söguþráð. Ef þið viljið vera hrædd farið þá á Hostel trúið mér hún er peningana virði en ekki þessi og ég þurfti ekkert að borga á the fog og fekk meira segja húfu í kaupæti(En frábært!). En allavegna ein stjarna fær fyrir að REYNA láta fólk bregðast og ágætlega leikstýrð...bless bless
Fyrir um 100 árum var skip að leita að hæli til að vera á. En það var svikið af bænum. Nú eru draugarnir úr skipinu vaknaðir og tilbúnir til að hefna sín á öllum sem verða fyrir sem þoka.
Rólegt sjávarþorp verður skyndilega vart við þykka þoku sem leggst yfir bæinn. Í þokunni virðast leynast óhugnarleg öfl því óhöpp og dauðsföll fylgja hvert sem þokan fer!
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Vefsíða:
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
20. janúar 2006