Náðu í appið
Nim's Island

Nim's Island (2008)

"Be the hero of your own story."

1 klst 36 mín2008

Nim’s Island segir sögu af ungri stúlku með fjörugt ímyndunarafl sem ber nafnið Nim (Abigail Breslin).

Rotten Tomatoes51%
Metacritic55
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Nim’s Island segir sögu af ungri stúlku með fjörugt ímyndunarafl sem ber nafnið Nim (Abigail Breslin). Hún býr á ótrúlega fallegri eyju með föður sínum Jack (Gerard Butler) og eyðir tímanum í ævintýri í skóginum ásamt dýravinum sínum og að lesa bækur með hugrökkustu sögupersónu í heimi, Alex Rover. Einn daginn verður faðir hennar, Jack, að fara í rannsóknarferðalag og ákveður að skilja Nim eina eftir á eyjunni, og þá fyrst fara ævintýrin að gerast. Þegar Jack týnist úti á sjónum þá verður Nim að hafa samband við Alexöndru (Jodie Foster), höfund bókanna um Alex Rover til þess að finna föður sinn. Þær tvær líta til sögupersónunnar mögnuðu Alex Rover til að finna hugrekki í leit sinni að föður Nim.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Mark Levin
Mark LevinLeikstjóri

Framleiðendur

Walden MediaUS