Gilitrutt (1957)
"Ævintýramynd fyrir börn byggð á gömlum þjóðsögum og ævintýrum um börnin í sveitinni og tröllskessur sem ógna tilveru þeirra."
Sagan gerist undir Eyjafjöllum og segir frá bónda nokkrum, nýkvæntum ákafamanni sem á sauðfé mikið.
Deila:
Söguþráður
Sagan gerist undir Eyjafjöllum og segir frá bónda nokkrum, nýkvæntum ákafamanni sem á sauðfé mikið. Kona hans er ung, en duglaus og dáðlaus og verður því tröllkonunni Gilitrutt næstum að bráð. Hvað sem nútímakonum kann að þykja um samhengið, láta laun ódyggðarinnar ekki á sér standa í frásögninni sem endurspeglar samfélag þar sem engum má nokkru sinni falla verk úr hendi.






