Der Baader Meinhof Komplex (2008)
Þýskaland áttunda áratug síðustu aldar: Mannskæðar sprengjuárásir, stöðug hryðjuverkaógn og ótti við óvini innan ríkisins ógna stoðum þjóðarinnar og hins viðkvæma þýska lýðveldis. Ástæðan: Red...
Bönnuð innan 16 ára
Ofbeldi
BlótsyrðiSöguþráður
Þýskaland áttunda áratug síðustu aldar: Mannskæðar sprengjuárásir, stöðug hryðjuverkaógn og ótti við óvini innan ríkisins ógna stoðum þjóðarinnar og hins viðkvæma þýska lýðveldis. Ástæðan: Red Army Faction (RAF), hópur sem samanstendur af ungu og ofsafengnu fólki undir stjórn Andreas Baader, Ulrike Meinhof og Gudrun Ensslin. Þessi róttæku samtök börðust á ofbeldisfullan hátt gegn því sem þau töldu hið nýja andlit fasismans, hinni amerísku heimsvaldastefnu sem var studd af þýskum ráðamönnum, sem margir hverjir höfðu tengsl við Nasista fyrri ára. Myndin segir frá afdrifaríkum aðgerðum þessa hættulega hóps og eltingaleik lögregluforingjans Horst Herold við meðlimi hans. Horst, sem stjórnar aðgerðum gegn hópnum, er þó í stórri klemmu; hann hefur nefnilega samúð með boðskap RAF, þrátt fyrir blóðbaðið sem samtökunum fylgir. Hvernig á hann þá að geta stöðvað hryllinginn?
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur















