Náðu í appið
Rudo Y Cursi

Rudo Y Cursi (2008)

Rough and Vulgar

1 klst 43 mín2008

Tveir bræður berjast um frægð innan knattspyrnuheims Mexíkó.

Rotten Tomatoes72%
Metacritic67
Deila:

Söguþráður

Tveir bræður berjast um frægð innan knattspyrnuheims Mexíkó. Mexíkósku hálf bræðurnir Beto og Tato sem fá viðurnefnin Rudo, grófur, og Cursi, væminn, eiga í dæmigerðu ástar hatars bræðrasambandi. Þeir vinna báðir á banana ekru og búa með stórfjölskyldunni, móður sinni, ofbeldisfullum stjúpföður, systurinni Nadia, og eiginkonu Beto, Tona, og börnum. Fjölskyldan er dæmigerð sveitafjölskylda og rétt ná að skrimta. Allt breytist þegar Batuta, maður sem leitar að hæfileikafólki, verður á vegi þeirra, en bræðurnir eru báðir góðir í fótbolta. Beto er markvörður en Tato er framherji. Beto hefur alltaf dreymt um að leika sem atvinnumaður, en Tato hefur þó meiri áhuga á frama innan tónlistarinnar. Batuta finnur að lokum lið fyrir báða bræðurna og í framhaldinu gengur á ýmsu og bræðurnir verða frægir. Það mætti þó ganga betur hjá Tato í tónlistinnni, og Beto er veikur fyrir fjárhættuspili, en allt þetta spilar inn í líf þeirra og hefur áhrif á framvindu lífs þeirra í myndinni.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Carlos Cuarón
Carlos CuarónLeikstjóri

Framleiðendur

Focus FeaturesUS
Cha Cha CháMX
Universal PicturesUS