Náðu í appið
Smother

Smother (2008)

"Everyone wants to be loved. Just not this much."

1 klst 32 mín2008

Smother er gamanmynd með Diane Keaton, Dax Shepard, Liv Tyler og Mike White í aðalhlutverkum.

Rotten Tomatoes38%
Metacritic36
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára

Söguþráður

Smother er gamanmynd með Diane Keaton, Dax Shepard, Liv Tyler og Mike White í aðalhlutverkum. Marilyn Cooper (Keaton) er ein af þessum mæðrum sem hringir í mann klukkan hálf-sjö á morgnana eða segir ókunnugum vandræðalegar sögur af syni sínum, Noah (Shepard), og sem er alltaf að gefa góð ráð, jafnvel þegar það er ekki beðið um þau. Vegna þessara eiginleika hefur Noah alltaf haldið sig eins fjarri móður sinni og hægt er. Það reynist þó ómögulegt þegar Marilyn sannfærist um að eiginmaður hennar sé að halda fram hjá henni og flytur óvænt heim til Noah, ásamt hundunum sínum fimm. Noah hafði átt nógu slæman dag fyrir, þar sem hann er nýbúinn að missa vinnuna og er undir pressu frá eiginkonu sinni, Claire (Tyler), um að eignast börn. Brátt neyðist Noah til að takast á við hin fjölmörgu vandamál sín í lífinu, en efst á þeim lista er móðir hans.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Vince Di Meglio
Vince Di MeglioLeikstjóri
Tim Rasmussen
Tim RasmussenHandritshöfundur

Framleiðendur

Carsey-Werner CompanyUS