Náðu í appið
Diary of a Sex Addict

Diary of a Sex Addict (2008)

Diario de una ninfómana

1 klst 35 mín2008

Diary of a Sex Addict er áleitin mynd byggð á samnefndri skáldsögu sem vakti mikið umtal þegar hún kom út.

Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiKynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Diary of a Sex Addict er áleitin mynd byggð á samnefndri skáldsögu sem vakti mikið umtal þegar hún kom út. Myndin segir frá hinni 28 ára gömlu Val, sem er aðlaðandi kona sem hefur lokið við háskólanám sitt og stendur vel í lífinu. Að auki er hún mjög frjálslynd í fasi og mjög forvitin á kynferðislega sviðinu og er stöðugt að leita að nýrri reynslu í því efni. Hún sefur hjá þeim sem henni sýnist þegar hún vill. Eftir nokkurn tíma þar sem hún hefur fengið sínu fram að vild er hún þó lent í þeirri stöðu að kynlíf er orðið algerlega ráðandi í hennar lífi, sem leiðir til þess að hún fer að þrá að finna ástina. Leiðin til þess er þó meira en lítið grýtt og fyrr en varir er hún farin að stunda vændi á götum borgarinnar og lendir í svakalegri aðstæðum en hana hafði nokkurn tíma órað fyrir.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Christian Molina
Christian MolinaLeikstjóri

Framleiðendur

FilmaxES
Canonigo FilmsES