Náðu í appið
Masters of the Universe

Masters of the Universe (1987)

"From a distant galaxy... they have come to Earth."

1 klst 46 mín1987

Skeletor og her hans á plánetunni Eternia, veltir seiðkonunni í Grayskull kastala af valdastóli, í þeirri von að öðlast krafta hennar.

Rotten Tomatoes21%
Metacritic35
Deila:
10 áraBönnuð innan 10 ára

Söguþráður

Skeletor og her hans á plánetunni Eternia, veltir seiðkonunni í Grayskull kastala af valdastóli, í þeirri von að öðlast krafta hennar. Ráðist er á He-Man og gamlan vin hans Duncan “Man-at-Arms” og dóttur hans Teela, af hermönnum Skeletor, en þau sigra þá. Þau bjarga einnig fanga þeirra, uppfinningamanninum og lásasmiðnum Gwildor. Hann segir að hann hafi verið ginntur af Evil-Lyn sem notaði uppfinningu hans, Alheimslykilinn, til að opna hliðin og ná kastala Grayskull. He-Man og vinir hans ná frumgerð lykilsins, og reyna að leysa seiðkonuna úr haldi, en Skeletor og her hans ná yfirhöndinni, en Gwildor notar lykil hans til að opna hliðin fyrir þeim og flýja. Þau koma til Jarðar, en tapa lyklinum. Á sama tíma finnur Julie Winston, sem syrgir foreldra sína sem létust í flugslysi, og kærasti hennar Kevin Corrigan lykilinn og virkja hann, en halda að þar sé á ferð ævafornt hljóðfæri. Á Eternia Finnur Evil-Lyn lykilinn og Skeletor sendir hana með hópi málaliða og hermanna til að sigrast á He-Man og vinum hans og ná lyklinum til baka. En mun þeim takast það?

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gary Goddard
Gary GoddardLeikstjóri

Framleiðendur

Pressman FilmUS
The Cannon GroupUS
Golan-Globus ProductionsUS