Náðu í appið
Latibær 2 - Leikfangabjörgunin

Latibær 2 - Leikfangabjörgunin (2010)

LazyTown

1 klst 37 mín2010

Hér kemur út þriðji diskurinn úr annarri þáttaröð Latabæjar, en á honum eru fjórir þættir.

Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Hér kemur út þriðji diskurinn úr annarri þáttaröð Latabæjar, en á honum eru fjórir þættir. Sá fyrsti, Ruslaraunir, ákveða krakkarnir að taka almennilega til í bænum svo hann haldist hreinn. Glanni glæpur er hins vegar með önnur áform og ætlar að nota fallbyssu til að dreifa rusli um allan bæinn. Þáttur númer tvö, Snjóskrímslið, segir frá ógurlegu snjóskrímsli sem herjar á bæinn, en undir niðri leynist þekktur óvinur... Þriðji þátturinn, Leikfangabjörgunin, segir frá því þegar Glanni býr til segul sem sogar til sín öll íþróttaáhöld, og eru þá góð ráð dýr. Í lokaþættinum, Sjónvarpsstöðin, setur Goggi á stofn sjónvarpsstöð, en það líst Glanna illa á sem ætlar að taka til sinna ráða í því.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar