Náðu í appið
Direct Contact

Direct Contact (2009)

Guardian

"They Thought he was dead. They were dead wrong."

1 klst 30 mín2009

Direct Contact segir frá Mike Riggins (Lundgren), en hann er fyrrum sérsveitarmaður úr bandaríska hernum og vann aðallega á hættuslóðum í austur-Evrópu.

Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Direct Contact segir frá Mike Riggins (Lundgren), en hann er fyrrum sérsveitarmaður úr bandaríska hernum og vann aðallega á hættuslóðum í austur-Evrópu. Nú hefur gæfan hins vegar snúið við honum baki og hann situr í fangelsi. Þegar honum býðst leið til að losna úr fangelsi stekkur hann því á hana. En þessi leið er langt frá því að vera ókeypis, því vilji hann öðlast frelsi þarf hann að ferðast á gamlar slóðir til að bjarga ungri bandarískri konu, Önu Gale (May), sem hefur verið tekin í gíslingu af miskunnarlausum herforingja. Honum tekst að bjarga henni, en þá kemur í ljós að björgunin var ekkert annað en yfirvarp til að gera Önu að auðveldara skotmarki. Þá tekur við blóðugur eltingaleikur þar sem Mike þarf að verja bæði sjálfan sig og Önu frá mörgum mismunandi aðilum sem vilja hana feiga af einhverri ástæðu...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Danny Lerner
Danny LernerLeikstjóri
Les Weldon
Les WeldonHandritshöfundur