Náðu í appið
Stolen Lives

Stolen Lives (2009)

Stolen, The Boy in the Box

"Secrets from the past don't stay buried."

1 klst 31 mín2009

Spennumyndin Stolen segir frá lögreglumanninum Tom Adkins sem starfar í smábæ nokkrum og lifir þægilegu lífi þar með eiginkonunni Barböru og syni sínum.

Metacritic34
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:KynlífKynlíf

Söguþráður

Spennumyndin Stolen segir frá lögreglumanninum Tom Adkins sem starfar í smábæ nokkrum og lifir þægilegu lífi þar með eiginkonunni Barböru og syni sínum. Það breytist þó skyndilega daginn sem sonurinn hverfur sporlaust á fjölskyldusamkomu. Engar vísbendingar finnast um hvar hann er niðurkominn og heltekur hvarfið allt líf Toms. Átta ár líða og aldrei kemst Tom yfir hvarf sonarins, en málið, sem allir telja grafið að eilífu, öðlast nýtt líf þegar líkamsleifar annars stráks finnast fyrir slysni. Í ljós kemur að um er að ræða lík drengs sem hvarf 50 árum áður, en faðir hans (Josh Lucas) þurfti sjálfur að ganga í gegnum svipaða lífsreynslu og Tom í nútímanum, þar sem málið var aldrei upplýst og sökudólgurinn fannst aldrei. Þegar Tom byrjar að rannsaka það mál upp á nýtt sannfærist hann um að þessi tvö mál tengist. En hvernig þau tengjast á eftir að koma honum á óvart.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Anders Anderson
Anders AndersonLeikstjóri
Paul Trinka
Paul TrinkaHandritshöfundurf. 1959

Framleiðendur

Boy in the Box
Capitol FilmsGB
2 Bridges Productions
A2 Entertainment Group