Náðu í appið
The Other End of the Line

The Other End of the Line (2008)

"Two countries. Two cultures. One chance at love."

1 klst 46 mín2008

Við kynnumst hér hinni indversku Pryiu sem vegna enskukunnáttu sinnar fær vinnu hjá indversku símafyrirtæki við að svara fyrirspurnum frá viðskiptavinum bandarísks netbanka.

Rotten Tomatoes35%
Metacritic40
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Við kynnumst hér hinni indversku Pryiu sem vegna enskukunnáttu sinnar fær vinnu hjá indversku símafyrirtæki við að svara fyrirspurnum frá viðskiptavinum bandarísks netbanka. Dag einn hringir í hana viðskiptavinur að nafni Granger en hann hefur orðið fyrir því að kreditkorti hans hefur verið lokað. Með eftirgrennslan kemst Pryia að því að ástæða lokunarinnar er sú að viðvörunarkerfi bankans taldi nokkrar úttektir af kortinu vera grunsamlegar. En óttinn við svik var byggður á misskilningi og eftir smástund tekst Pryiu að leysa málið og opna kortið á ný. Þetta leiðir til þess að þau Granger og Pryia fara að tala meira saman og Granger, sem veit ekki betur en að Pryia sé í San Francisco, biður hana að lokum að hitta sig í borginni. Og Pryia ákveður þó að láta slag standa og fljúga út í óvissuna ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

James Dodson
James DodsonLeikstjóri
Tracey Jackson
Tracey JacksonHandritshöfundur

Framleiðendur

Brass Hat FilmsGB
Adlabs Films Ltd.
Metro-Goldwyn-MayerUS
Hyde Park EntertainmentUS