Stan Helsing (2009)
Stan Helsing segir frá iðjuleysingjanum Stan, sem býr í smábæ einum í Bandaríkjunum og vinnur á vídeóleigu á milli þess sem hann veltir sér upp...
Bönnuð innan 12 ára
HræðslaSöguþráður
Stan Helsing segir frá iðjuleysingjanum Stan, sem býr í smábæ einum í Bandaríkjunum og vinnur á vídeóleigu á milli þess sem hann veltir sér upp úr myndasögum og hangir með kynþokkafullri kærustu sinni. Auk þess á hann nokkra skrautlega vini sem eru flestir jafn miklir iðjuleysingjar og hann. Nú er Hrekkjavakan að renna upp og Stan og vinir hans ákveða að klæða sig upp í tilefni þess og flakka um bæinn, en á leið sinni eiga þau eftir að lenda í afar óvæntum ævintýrum sem innihalda marga af frægustu hrollvekjupersónum allra tíma: Freddy, Jason, Pinhead, Leatherface, Chucky og Michael Myers, auk margra fleiri misundarlegra karaktera sem verða á leið þeirra. Þessi félagsskapur á svo eftir að gera kvöldið mun blóðugra en lagt var upp með...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur











