Everything Must Go (2010)
Neighbor for Sale
"Lost is a good place to find yourself"
Nick Halsley er tiltölulega nýkominn úr áfengismeðferð, en hann hefur um 16 ára skeið starfað hjá sama fyrirtækinu sem sölumaður.
Bönnuð innan 16 ára
Kynlíf
BlótsyrðiSöguþráður
Nick Halsley er tiltölulega nýkominn úr áfengismeðferð, en hann hefur um 16 ára skeið starfað hjá sama fyrirtækinu sem sölumaður. Dag einn verður hann fyrir áfalli þegar hann er rekinn úr vinnunni án nokkurs fyrirvara og skuldinni skellt á skipulagsbreytingar. Ekki batnar ástandið þegar hann kemur heim því konan hans er búin að skipta um lása á húsi þeirra, heimtar skilnað og hefur hent öllu sem Nick átti á heimilinu út á grasflötina fyrir framan húsið. Þar sem Nick hefur í engin hús að venda ákveður hann að hreiðra um sig í hægindastólnum sínum í garðinum og byrjar síðan að þamba bjór á ný svo veröldin líti a.m.k. bærilegar út. Hann kynnist brátt ungum strák í hverfinu og nýjum nágranna og með þeirra hjálp ákveður Nick að setja í gang garðsölu á eignum sínum til að losa sig endanlega við fortíðina og hefja nýtt líf.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir
Gagnrýni notenda
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráEngar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!
Framleiðendur














