Náðu í appið
Our Idiot Brother

Our Idiot Brother (2011)

"Er einn svona í þinni fjölskyldu?"

1 klst 30 mín2011

Ned er gæddur þeirri undarlegu "gáfu" að geta komið sér í vandræði hvenær sem er, bara með því að segja satt og vera kurteis.

Rotten Tomatoes70%
Metacritic60
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:KynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Ned er gæddur þeirri undarlegu "gáfu" að geta komið sér í vandræði hvenær sem er, bara með því að segja satt og vera kurteis. Þannig endar hann í fangelsi þegar hann af einskærum drengskap reddar einkennisklæddum lögreglumanni dálitlu grasi. Í framhaldinu missir hann vinnuna, heimilið, kærustuna og forræðið yfir hundinum sínum, Willie Nelson. Ýmsir myndu láta bugast af svona mótlæti en ekki Ned sem sér alltaf björtu hliðarnar á málunum. Þess utan á hann góða að, móður og þrjár systur, sem koma honum til hjálpar eftir fangelsisvistina með því að leyfa honum að gista á meðan hann er að koma fótunum undir sig á nýjan leik. Vandamálið er að Ned er ekki bara lunkinn við að koma sjálfum sér í vandræði, hann er einnig einkar laginn við að koma öllum sem umgangast hann í vægast sagt óþægilega stöðu ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Big BeachUS
Likely StoryUS
Yuk Films