Náðu í appið
The Dictator

The Dictator (2012)

"Einræði fyrir alla"

1 klst 23 mín2012

Hershöfðinginn Aladeen er einræðisherra í landi sínu, Wadiya, og hefur að undanförnu sætt vaxandi gagnrýni frá Vesturveldunum sem vilja ólm koma honum frá völdum.

Rotten Tomatoes56%
Metacritic58
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiKynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Söguþráður

Hershöfðinginn Aladeen er einræðisherra í landi sínu, Wadiya, og hefur að undanförnu sætt vaxandi gagnrýni frá Vesturveldunum sem vilja ólm koma honum frá völdum. Við þetta er Aladeen ekki sáttur enda algjör andstæðingur lýðræðis þar sem uppþotapólitík eins og málfrelsi, mannréttindi og kvenfrelsi gerir ekkert annað en að æsa lýðinn. Honum er hins vegar ljóst að forráðafólk Vesturveldanna er ekki að grínast með hótunum sínum um að ráðast inn í land hans og því ákveður hann að lægja öldurnar, fara til New York og reyna að koma vitinu fyrir menn með snjöllu ávarpi á þingi Sameinuðu þjóðanna. En ferð Aladeens á svo sannarlega ekki eftir að fara eins og hann hafði áætlað og áður en yfir lýkur er aldrei að vita nema hann hafi skipt um skoðanir ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Paramount PicturesUS
Berg Mandel Schaffer Productions
Scott Rudin ProductionsUS
Four by Two FilmsUS