Náðu í appið
Almanya – Willkommen in Deutschland

Almanya – Willkommen in Deutschland (2011)

Almanya – Velkomin til Þýskalands

1 klst 41 mín2011

Hüseyin Yilmaz, tyrkneskur „gestaverkamaður“ í Þýskalandi til 45 ára, tilkynnir fjölskyldu sinni að hann hafi fest kaup á húsi í Tyrklandi og vill að fjölskyldan...

Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Söguþráður

Hüseyin Yilmaz, tyrkneskur „gestaverkamaður“ í Þýskalandi til 45 ára, tilkynnir fjölskyldu sinni að hann hafi fest kaup á húsi í Tyrklandi og vill að fjölskyldan snúi heim og endurnýji húsið. Fjölskyldan er ekki hrifin af hugmyndinni og miklar deilur hefjast. Ekki bætir úr skák þegar í ljós kemur að barnabarn Yilmaz, Canan, er ólétt af völdum ensks kærasta síns sem fjölskyldan hafði ekki hugmynd um! Canan reynir að hugga litla frænda sinn, Cenk, sem var lagður í einelti á fyrsta skóladegi sínum fyrir að vera „útlendingur“. Hún útskýrir fyrir honum afhverju fjölskyldan sé í Þýskalandi þrátt fyrir að vera ekki þýsk. Þau fara í ferðalag aftur í tímann til undursamlegs lands þar sem ljóshærðir risar búa, þar sem farið er með stórar rottur í göngutúra, þar sem vatnið kallast Coca-Cola og fólkið tilbiður litla tréstyttu á krossi og allir tala hrognamál – lands sem kallað er Almanya!

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Yasemin Samdereli
Yasemin SamdereliLeikstjórif. 1973

Framleiðendur

Roxy FilmDE
InfafilmDE
ZDFDE