Náðu í appið
Special Forces

Special Forces (2011)

Forces spéciales

"Ekkert annað skiptir máli"

1 klst 49 mín2011

Sex hermenn úr frönsku sérsveitinni eru sendir inn í greni talibana í Afganistan til að finna og frelsa blaðamann sem bíður aftöku sinnar.

Rotten Tomatoes8%
Metacritic37
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára

Söguþráður

Sex hermenn úr frönsku sérsveitinni eru sendir inn í greni talibana í Afganistan til að finna og frelsa blaðamann sem bíður aftöku sinnar. Elsa Casanova hefur verið tekin höndum af talibönum og öllum er ljóst að til stendur að taka hana af lífi. Þegar stundin nálgast og önnur úrræði bregðast ákveða frönsk hermálayfirvöld að senda sex af sínum bestu mönnum úr frönsku sérsveitinni til að freista þess að frelsa Elsu úr klóm mannræningjanna áður en það verður orðið of seint. Fyrir sérsveitinni fer liðsforinginn Kovax sem hefur séð það svart fyrr en hefur óbugandi trú á getu sinna manna til að klára verkið. Hann gat þó ekki séð fyrir að sveitin myndi tapa fjarskiptabúnaði sínum þegar á hólminn væri komið og þar með þurft að sjá sjálf um að koma sér út úr landinu þegar búið væri að frelsa Elsu ...

Aðalleikarar

Framleiðendur

Sofica Manon
Easy Company
StudioCanalFR
TPS StarFR
A Plus Image 2FR
Canal+FR