Náðu í appið
Teddi týndi landkönnuðurinn

Teddi týndi landkönnuðurinn (2012)

Tad, the Lost Explorer

"Engar Byssur. Engin svipa. Svakalegt fjör."

1 klst 30 mín2012

Allt frá því að Teddi var lítill drengur hefur hann dreymt um að ferðast um heiminn og uppgötva týnda fjársjóði eins og hetjan hans, Indiana Jones, gerði.

Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2Síminn

Söguþráður

Allt frá því að Teddi var lítill drengur hefur hann dreymt um að ferðast um heiminn og uppgötva týnda fjársjóði eins og hetjan hans, Indiana Jones, gerði. nú fær hann tækifærið! Við kynnumst Tedda fyrst á barnsárunum þegar hann dundaði sér við að grafa upp fjársjóði í garðinum hjá sér. Lítið var þar að finna nema skemmtunina sem var ósvikin þótt jafnaldrar hans væru stöðugt að gera grín að honum fyrir þetta óvenjulega áhugamál. Seinna fékk Teddi vinnu sem byggingaverkamaður og er óhætt að segja að hann hafi fundið ýmislegt misjafnlega áhugavert í grunnum þeirra húsa sem hann vann við að byggja, gamlar kókflöskur og fleira. En Teddi vildi meira ... og það er nákvæmlega það sem hann fær þegar óvænt uppgötvun leiðir til þess að hann fer í alvörufjársjóðsleit alla leið til Egyptalands. Fljótlega er hann kominn á sporið en það hafa líka fleiri gert og þeir eru ekki alveg jafnvinsamlegir og Teddi ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

StudioCanalFR
Lightbox EntertainmentGB
Ikiru FilmsES
Telefónica StudiosES
El Toro PicturesES
Canal+FR