Náðu í appið
Stand Up Guys

Stand Up Guys (2012)

"It´s Never Too Late to Set Things Right."

1 klst 35 mín2012

Stand Up Guys gerist á 24 klukkustundum og hefst á því að Val (Al Pacino) fær frelsi sitt að nýju eftir að hafa dúsað á bak við lás og slá í 28 ár fyrir vopnað rán.

Rotten Tomatoes37%
Metacritic41
Deila:
Stand Up Guys - Stikla
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiVímuefniVímuefniHræðslaHræðslaBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Stand Up Guys gerist á 24 klukkustundum og hefst á því að Val (Al Pacino) fær frelsi sitt að nýju eftir að hafa dúsað á bak við lás og slá í 28 ár fyrir vopnað rán. Á móti honum tekur vinur hans Doc (Christopher Walken) og er óhætt að segja að fagnaðarfundir verði með þeim félögum. Þeir ákveða að halda upp á endurfundina með því að rifja upp gamla takta og mála bæinn rauðan. Eitt af því sem þeir gera er að hafa uppi á þriðja félaganum, Hirsch (Alan Arkin). Sá var ökumaðurinn í ráninu sem Val var dæmdur fyrir á sínum tíma, en dvelur nú með öndunargrímu á elliheimili. Það hvílir hins vegar skuggi yfir gleðinni. Glæpaforinginn Claphands (Mark Margolis) hefur nefnilega fyrirskipað Doc að drepa Val fyrir klukkan 10 árdegis næsta dag ella muni Doc sjálfur deyja. Þetta setur Doc að sjálfsögðu í mikinn vanda, ekki síst vegna þess að Val veit hvað stendur til ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

LionsgateUS
Sidney Kimmel EntertainmentUS
Lakeshore EntertainmentUS