Náðu í appið
Bönnuð innan 12 ára

The Incredible Burt Wonderstone 2013

Frumsýnd: 12. apríl 2013

Abracatastic!

Enska
Rotten tomatoes einkunn 37% Critics
The Movies database einkunn 44
/100

Já, hinn óviðjafnanlegi Burt Wonderstone má sannarlega muna sinn fífil fegurri. Ásamt Anton rakaði hann saman milljónum dollara á sýningu þeirra í Las Vegas en þeim tíma er löngu lokið. Nú er svo komið að sýningunum er sennilega sjálfhætt vegna skorts á áhorfendum og lítillar bjartsýni á að þeim muni fjölga úr þessu. Burt glímir við margskonar vanda.... Lesa meira

Já, hinn óviðjafnanlegi Burt Wonderstone má sannarlega muna sinn fífil fegurri. Ásamt Anton rakaði hann saman milljónum dollara á sýningu þeirra í Las Vegas en þeim tíma er löngu lokið. Nú er svo komið að sýningunum er sennilega sjálfhætt vegna skorts á áhorfendum og lítillar bjartsýni á að þeim muni fjölga úr þessu. Burt glímir við margskonar vanda. Í fyrsta lagi hefur hann misst nánast allan áhuga á töfrabrögðum og í öðru lagi þá er hinn meinti vinskapur hans og Antons löngu glataður. Í þriðja lagi virðist almenningur hafa mun meiri áhuga á að sjá strætislistamenn eins og hinn hrokafulla Steve Grey sýna listir sýnar í stað þess að sjá alvörutöfra eins og þá sem Burt hafði sérhæft sig í. En hvað á Burt að gera? Dag einn þegar hann er að sýna nokkrum gamalmennum á elliheimili spilagaldra rekst hann á sjálfan Rance Holloway, manninn sem upphaflega var ástæðan fyrir því að Burt ákvað í æsku að gerast töframaður. Getur fundur þeirra orðið til þess að Burt finni neistann á ný?... minna

Aðalleikarar

Skrifa gagnrýni
Senda inn

Tengdar fréttir

19.06.2013

James Gandolfini látinn

Bandaríski leikarinn James Gandolfini er látinn 51 árs að aldri. Leikarinn var staddur á Ítalíu þegar hann lést, en banamein hans er talið vera hjartaáfall. Gandolfini er best þekktur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum The Sopranos þar sem hann l...

18.06.2013

Steratröll á toppnum

Steratröllinn í nýju Michael Bay myndinni, hinni sannsögulegu Pain and Gain,  tylltu sér á topp íslenska bíóaðsóknarlistans um helgina en myndin var frumsýnd í síðustu viku. Myndin fjallar um ótrúlega sögu ...

10.06.2013

Frumsýning: Pain and Gain

Sambíóin frumsýna nýjustu mynd leikstjórans Michael Bay, Pain and Gain,  á miðvikudaginn næsta, þann 12. júní. Í tilkynningu frá Sambíóunum segir að óhætt sé að segja hér sé á ferðinni "einhver svartasta kómedí...

Svipaðar myndir



Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn