The Haunting in Connecticut 2: Ghosts of Georgia
2013
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Trúðu því sem þú sérð
100 MÍNEnska
19% Critics 26
/100 Hrollvekjan The Haunting in Connecticut kom út árið 2009 og náði talsverðum vinsældum, en í henni var sögð saga af mögnuðum draugagangi sem margir telja að hafi raunverulega átt sér stað. Þessi nýja mynd er byggð á sömu sögu en er þó ekki framhald fyrri myndarinnar heldur sjálfstæð og ný útgáfa af henni. Hjónin Andy og Lisa festa kaup á gömlu húsi... Lesa meira
Hrollvekjan The Haunting in Connecticut kom út árið 2009 og náði talsverðum vinsældum, en í henni var sögð saga af mögnuðum draugagangi sem margir telja að hafi raunverulega átt sér stað. Þessi nýja mynd er byggð á sömu sögu en er þó ekki framhald fyrri myndarinnar heldur sjálfstæð og ný útgáfa af henni. Hjónin Andy og Lisa festa kaup á gömlu húsi sem enginn hefur búið í síðastliðin 20 ár. Þau flytja inn ásamt ungri dóttur sinni, Heidi, og brátt bætist í hópinn systir Lisu, Joyce, sem ætlar að hjálpa hjónunum að koma húsinu í stand. Það líða hins vegar ekki margir dagar uns dularfullar sýnir taka að herja á Heidi sem meðal annars lýsa sér í því að hún finnur fyrir návist og sér jafnvel löngu látna íbúa hússins. Í fyrstu eiga hin fullorðnu erfitt með að trúa frásögn Heidiar af upplifun sinni, en það á eftir að breytast ...... minna