Náðu í appið
Blue Is the Warmest Color

Blue Is the Warmest Color (2013)

La vie d'Adèle, Líf Adele

"Ástin birtist í ýmsum myndum."

2 klst 59 mín2013

Myndin fjallar um Adele, 15 ára, en líf hennar gengur út á það að fara í skólann og slúðra um vinina; hver er skotinn í hverjum o.s.frv.

Rotten Tomatoes88%
Metacritic90
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:KynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

Myndin fjallar um Adele, 15 ára, en líf hennar gengur út á það að fara í skólann og slúðra um vinina; hver er skotinn í hverjum o.s.frv. Adele sér enga þörf á þessum aldri til að efast um það sem telst venjulegt í samfélaginu: stelpur hitta stráka og þannig er það bara. En eftir að hún byrjar með einum vinsælasta stráknum í skólanum, þá áttar hún sig á að það vantar eitthvað tilfinningalega. Þrár hennar eru ekki þær sömu og ættu að vera samkvæmt bekkjarfélögunum sem telja hann vera fullkominn strák fyrir hana. Þetta veldur ruglingi hjá henni og hún fer að velta fyrir sér hvað gæti verið að. Allt breytist þegar hún hittir fyrir tilviljun hina bláhærðu Emmu sem breytir lífi hennar til frambúðar. Eftir því sem samband þeirra blómstrar, þá losnar um þrár Adele, í ástríðufullum samverustundum þeirra Emmu.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Abdellatif Kechiche
Abdellatif KechicheLeikstjórif. -0001
Julie Maroh
Julie MarohHandritshöfundurf. -0001
Ghalia Lacroix
Ghalia LacroixHandritshöfundurf. -0001

Framleiðendur

Wild BunchFR
SCOPE PicturesBE
Quat'sous FilmsFR
France 2 CinémaFR
RTBFBE
Alcatraz FilmsFR