Náðu í appið
Bönnuð innan 12 ára

Fading Gigolo 2013

Justwatch

Frumsýnd: 29. ágúst 2014

The oldest profession just got older.

90 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 54% Critics
The Movies database einkunn 58
/100

Myndin fjallar í grunninn um tvo vini sem ákveða að græða pening á því að selja annan þeirra til vændis. Eini gallinn er sá að persóna Turturro er miðaldra óöruggur einstaklingur. Með söluhæfileikum persónu Allen nær hann að selja vin sinn til glæsikvenna Turturro leikur hér hinn lítilláta og tiltölulega hlédræga blómasala Fioravante í New York.... Lesa meira

Myndin fjallar í grunninn um tvo vini sem ákveða að græða pening á því að selja annan þeirra til vændis. Eini gallinn er sá að persóna Turturro er miðaldra óöruggur einstaklingur. Með söluhæfileikum persónu Allen nær hann að selja vin sinn til glæsikvenna Turturro leikur hér hinn lítilláta og tiltölulega hlédræga blómasala Fioravante í New York. Dag einn kemur til hans góður vinur hans, hinn síblanki Murray, og segir honum að hann hafi hitt konu sem er tilbúin að greiða þúsund dollara fyrir nótt með manni sem er fær um að uppfylla kynlífsdrauma hennar. Og Murray, sem bráðvantar peninginn, ákveður að biðja Fioravante um að taka að sér verkefnið, fullviss um að hann valdi því auðveldlega. Sjálfur er Fiorvante efins um að hann sé rétti maðurinn til að sinna konunni en ákveður að lokum að láta á það reyna, aðallega samt til að hjálpa Murray að rétta úr kútnum fjárhagslega. Í ljós kemur að Fioravante leynir heldur betur á sér í rekkjubrögðunum og reynist hinn fullkomni elskhugi. Það opnar um leið möguleika Murrays á að búa sér til meiri pening og drífur hann til að afla þeim félögum frekari viðskipta á sama sviði. Það reynist tiltölulega auðvelt og vindur fljótt upp á sig. Málin byrja hins vegar að vandast þegar Fioravante verður ástfanginn af einum viðskiptavininum, hinni einmana ekkju Avigal ...... minna

Aðalleikarar

Leikstjórn

Skrifa gagnrýni
Senda inn

Tengdar fréttir

13.08.2013

Vergara kaupir kynlífsþjónustu af Allen í nýrri stiklu

Nýjasta kvikmynd John Turturro, Fading Gigolo, með Woody Allen og sjálfum Turturro í aðalhlutverkum verður sýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto í september. Ný stikla hefur verið sýnd úr myndinni fyrir hátíðina....

13.08.2013

Disney kynnir næstu verkefni Pixar

Um helgina hélt Disney ráðstefnu þar sem var sagt frá næstu verkefnum fyrirtækisins. Um var að ræða kynningarráðstefnu sem er haldin ár hvert fyrir aðdáendur teiknimynda. Pixar lék þar stórt hlutverk og kynnti meðal...

Svipaðar myndir



Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn