3096 Days (2013)
3096 Tage
"Átta ára martröð"
Hin tíu ára Natascha Maria Kampusch var á leiðinni í skólann þegar henni var rænt í mars árið 1998 og átta ára martröð hennar í haldi ræningjans hófst.
Bönnuð innan 14 ára
Ofbeldi
HræðslaSöguþráður
Hin tíu ára Natascha Maria Kampusch var á leiðinni í skólann þegar henni var rænt í mars árið 1998 og átta ára martröð hennar í haldi ræningjans hófst. 3096 Days er byggð á samnefndri bók sem Natascha Kampusch gaf út árið 2010 og fjallaði um upplifun hennar í þau rúmu átta ár sem Wolfgang Přiklopil hélt henni fanginni í kjallara íbúðar sinnar skammt frá höfuðborg Austurríkis, Vín. Að auki segir myndin frá þeim lögregluaðgerðum sem fóru í gang í kjölfar hvarfs hennar og þeirri skelfingu sem fjölskylda hennar þurfti að ganga í gegnum í algjörri óvissu um afdrif hennar. Þegar Natascha slapp síðan óvænt úr prísundinni í ágúst 2006 vakti málið heimsathygli og þykir lífsreynsla hennar og þessi magnaða frásögn í raun ótrúlegri en nokkur skáldskapur.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur
























