Náðu í appið
Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf

Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf (2013)

The 100-Year-Old Man Who Climbed Out the Window and Disappeared

"Things are what they are, and whatever will be will be."

1 klst 54 mín2013

Þegar Allan Karlsson vaknar að morgni 100 ára afmælis síns ákveður hann að stinga af frá elliheimilinu og halda sína leið út í buskann í stað þess að mæta í afmælisveisluna.

Rotten Tomatoes68%
Metacritic58
Deila:
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiHræðslaHræðsla

Söguþráður

Þegar Allan Karlsson vaknar að morgni 100 ára afmælis síns ákveður hann að stinga af frá elliheimilinu og halda sína leið út í buskann í stað þess að mæta í afmælisveisluna. Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf er byggð á samnefndri skáldsögu eftir sænska rithöfundinn Jonas Jonasson, en hún kom út árið 2009. Segja má að bókin hafi orðið stórsmellur nokkuð óvænt, enda fyrsta bók höfundar, en hún hefur nú verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál og hvarvetna notið mikilla vinsælda. Hinn 100 ára Allan Karlsson flýr frá elliheimilinu á 100 ára afmælisdegi sínum. Ekki líður á löngu uns hann er kominn í hreint ævintýralegar og oft sprenghlægilegar aðstæður en um leið er ævisaga hans og fortíð rifjuð upp. Í ljós kemur að Allan á enga venjulega ævi að baki heldur hefur hann hitt og haft áhrif á marga helstu lykilmenn síðari tíma, svo sem Franco, Harry S. Truman Bandaríkjaforseta, Stalín, Maó Tse Tung, Albert Einstein, leiðtoga Norður-Kóreu, Kim II Sung, Winston Churchill og fleiri. Hins vegar eru áhöld um hvort áhrif Allans á það valdamikla fólk sem hann hefur hitt á lífsleiðinni hafi orðið veröldinni til góðs. Um það verður hver og einn að dæma fyrir sig en víst er að án hans væri veröldin ekki sú sama og hún er í dag.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Felix Herngren
Felix HerngrenLeikstjórif. -0001

Aðrar myndir

Jonas Jonasson
Jonas JonassonHandritshöfundurf. -0001

Framleiðendur

Nordsvensk FilmunderhållningSE
FLXSE
Nice DramaSE
Nice FLX PicturesSE
Film i VästSE
TV4SE