Tenure (2008)
"He´s Having a Mid Term Crisis. / Helgar tilgangurinn meðalið?"
Menntaskólakennari með þriggja ára starfsreynslu að baki keppir um fastráðningu við skólann sem hann kennir í en er ekki viss um að hljóta hnossið.
Bönnuð innan 12 ára
Kynlíf
Vímuefni
BlótsyrðiSöguþráður
Menntaskólakennari með þriggja ára starfsreynslu að baki keppir um fastráðningu við skólann sem hann kennir í en er ekki viss um að hljóta hnossið. Það er Luke Wilson sem leikur menntaskólakennarann Charlie Thurber, en hann er að vonast eftir fastráðningu og þar með tryggri framtíð í starfi. Charlie nýtur mikillar hylli nemenda sinna en er á móti dálítið klaufskur í samskiptum við samkennarana, ekki síst skólastjórann og skólanefndina sem ákveður hverjir hljóti fastráðningu hverju sinni. Þegar vinur Charlies fer að beita óvönduðum meðulum til að hjálpa honum að ná settu marki fer í gang bráðfyndin atburðarás ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Myndir
Plaköt
Framleiðendur












