Fjällbackamorden: Ljusets drottning
2013
(Ljósdrottningin)
Leyndardómar og morð
89 MÍNSænska
Jólin nálgast og á Lúsíudeginum 13. desember kemur í ljós að unga konan sem leika átti Lúsíu við messu í kirkjunni í Fjallbäcka er horfin sporlaust. Ljósdrottningin er þriðja myndin af fimm í sjónvarpsmyndaröð sem byggð er í kringum persónurnar sem sænska glæpasögudrottningin Camilla Läckberg hefur skapað í sögum sínum. Svíar halda upp á Lúsíudaginn... Lesa meira
Jólin nálgast og á Lúsíudeginum 13. desember kemur í ljós að unga konan sem leika átti Lúsíu við messu í kirkjunni í Fjallbäcka er horfin sporlaust. Ljósdrottningin er þriðja myndin af fimm í sjónvarpsmyndaröð sem byggð er í kringum persónurnar sem sænska glæpasögudrottningin Camilla Läckberg hefur skapað í sögum sínum. Svíar halda upp á Lúsíudaginn þann 13. desember, en hann er helgaður ungri kristinni stúlku sem var myrt fyrir trú sína árið 304 eftir Krist. Þegar rithöfundurinn Erica Falck fer ásamt eiginmanni sínum í kirkju þennan dag til að taka þátt í Lúsíuhátíðinni kemur í ljós að unga konan sem leika átti Lúsíu og vera táknmynd hennar er horfin. Erica uppgötvar að innan safnaðarins eru í gangi hatrammar deilur sem ef til vill tengjast hvarfi stúlkunnar og ákveður að hella sér í rannsókn málsins ...... minna