Paddington
2014
Frumsýnd: 16. janúar 2015
Búðu þig undir vandræði / Please look after this bear. Thank you / The Adventure is About to Begin
95 MÍNEnska
97% Critics 77
/100 Paddington er ungur björn frá Perú sem hefur dálæti á Bretlandi. Hann ákveður að fara til Lundúna til að leita sér að nýju heimili, en hann áttar sig fljótlega á því að stórborgarlífið er ekki eins og hann ímyndaði sér. Hann kynnist góðhjartaðri fjölskyldu á Paddington-lestarstöðinni sem býður honum tímabundið athvarf. Svo virðist sem að gæfan... Lesa meira
Paddington er ungur björn frá Perú sem hefur dálæti á Bretlandi. Hann ákveður að fara til Lundúna til að leita sér að nýju heimili, en hann áttar sig fljótlega á því að stórborgarlífið er ekki eins og hann ímyndaði sér. Hann kynnist góðhjartaðri fjölskyldu á Paddington-lestarstöðinni sem býður honum tímabundið athvarf. Svo virðist sem að gæfan hafi snúist honum í hag, allt þangað til að þessi sjaldgæfi björn fangar athygli uppstoppara sem vinnur á safni... Eftir jarðskjálfta í heimalandi sínu, Perú, ferðast lítill, talandi björn alla leið til London þar sem hann vonast til að finna nýtt heimili. Sögurnar um bangsann Paddington eftir Michael Bond hafa notið gríðarlegra vinsælda allar götur frá því að fyrsta bókin um hann kom út í október árið 1958 og sló samstundis í gegn. Bond skrifaði í kjölfarið rúmlega 20 bækur um ævintýri Paddingtons og hafa þær verið þýddar á þrjátíu tungumál og selst í meira en þrjátíu milljónum eintaka. Kvikmyndin Paddington sem frumsýnd verður þann 16. janúar er byggð á fyrstu bókinni um þennan talandi bangsa og gleðigjafa sem þrátt fyrir að vera frekar klaufskur og meira en lítið forvitinn hefur hjartað á réttum stað, er alltaf kurteis en alveg ótrúlega snjall í að koma sér bæði í og út úr hinum mestu vandræðum.... minna