Gallowwalkers (2012)
"Live by the gun. Die by the gun. Come back for more..."
Byssumaðurinn Aman glímir við þau álög að allir sem hann drepur snúa aftur sem uppvakningar ræður í þjónustu sína ungan stríðsmann til að hjálpa sér...
Bönnuð innan 16 ára
Ofbeldi
Hræðsla
BlótsyrðiSöguþráður
Byssumaðurinn Aman glímir við þau álög að allir sem hann drepur snúa aftur sem uppvakningar ræður í þjónustu sína ungan stríðsmann til að hjálpa sér að finna þá sem bera ábyrgð á dauða eiginkonu sinnar. Móðir Amans var nunna sem eignaðist son sinn í synd og ákvað að gera samning við ill öfl þess efnis að Aman yrði ósigrandi í bardaga. Það gekk eftir en sá böggull fylgdi skammrifi að allir sem Aman drepur og hefur drepið breytast í uppvakninga sem hafa það eitt markmið að hefna sín á honum. Þegar eiginkona Amans er myrt á hrottalegan hátt sver Aman þess eið að hefna sín grimmilega á morðingjunum. Til að hjálpa sér að finna þá og um leið berjast við uppvakningana ræður hann í sína þjónustu stríðsmanninn Kansa sem á heldur betur eftir að láta til sín taka ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar










