On the Other Side of the Tracks (2012)
De l'autre côté du périph
"Sumar reglur eru settar til að brjóta þær"
Tveir franskir lögreglumenn sem eru eins ólíkir og svart og hvítt, bæði í útliti og háttum, neyðast til að vinna saman að lausn flókins morðmáls.
Bönnuð innan 14 ára
Ofbeldi
Kynlíf
BlótsyrðiSöguþráður
Tveir franskir lögreglumenn sem eru eins ólíkir og svart og hvítt, bæði í útliti og háttum, neyðast til að vinna saman að lausn flókins morðmáls. Eiginkona þekkts viðskiptajöfurs hefur verið myrt og beinist grunurinn að einu glæpagengjanna á götum Parísar. Tveimur lögreglumönnum er falið að komast til botns í málinu, þeim Ousmane og François, en segja má að þeir séu eins ólíkir og hugsast getur, ekki bara í útliti heldur einnig í viðhorfum sínum til starfsins. Á meðan François vill fara eftir bókinni hefur Ousmane litlar áhyggjur af því þótt hann brjóti reglurnar til að fá þær upplýsingar út úr mönnum sem hann vill fá. En alvaran er handan við hornið og ef þeim Ousmane og François á að takast að nálgast lausn málsins hafa þeir ekki um annað að velja en að snúa bökum saman ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir
Myndir
Plaköt
Framleiðendur








