African Safari 3D
2013
Stórkostlegt ferðalag þvert yfir Afríku á vit villtra dýra og náttúru
85 MÍNEnska
African Safari segir frá stórbrotnu ferðalagi frá strönd Namibíu norðaustur til Viktoríufossa og Kilimanjaro-fjalls í Tanzaníu og villtu dýralífinu á leiðinni. Það má með sanni segja að hér sé farið með áhorfendur í sannkallaða draumaferð um víðáttur sunnanverðrar Afríku, allt frá hinni fögru og sendnu vesturströnd Namibíu, upp að hinum stórkostlegu... Lesa meira
African Safari segir frá stórbrotnu ferðalagi frá strönd Namibíu norðaustur til Viktoríufossa og Kilimanjaro-fjalls í Tanzaníu og villtu dýralífinu á leiðinni. Það má með sanni segja að hér sé farið með áhorfendur í sannkallaða draumaferð um víðáttur sunnanverðrar Afríku, allt frá hinni fögru og sendnu vesturströnd Namibíu, upp að hinum stórkostlegu Viktoríufossum í Zimbabwe og alla leið að hæsta fjalli Afríku, Kilimanjaro í Tanzaníu. Ferðast er á bílum, bátum og með loftbelg sem gaf færi á stórkostlegri kvikmyndatöku, auk þess sem bæði náttúran og villt dýralífið er skoðað í sannkallaðri nærmynd sem oft og tíðum setti kvikmyndagerðarfólkið í stórhættu. Gestgjafar í ferðinni eru dýralífsfræðingarnir Mara Douglas-Hamilton og Kevin Richardson sem um leið fræða áhorfendur um dýrin og lifnaðarhætti þeirra.... minna