The Wedding Ringer (2015)
"He's the best man... money can buy."
Til að verða sér ekki til skammar í augum tilvonandi tengdaforeldra ákveður hinn vinalausi Doug að leita á náðir Jimmys Callahan og láta hann redda...
Bönnuð innan 12 ára
Kynlíf
Vímuefni
BlótsyrðiSöguþráður
Til að verða sér ekki til skammar í augum tilvonandi tengdaforeldra ákveður hinn vinalausi Doug að leita á náðir Jimmys Callahan og láta hann redda sér þykjustuvinum í væntanlegt brúðkaup sitt. Við kynnumst hér hinum sjálfsörugga gleðipinna og blátt áfram-manni Jimmy Callahan (Kevin Hart) sem rekur fyrirtækið Best Man Inc., en sú starfsemi gengur út á að Jimmy býðst til að vera vinur vinalausra manna sem þurfa nauðsynlega að líta út fyrir að vera eitthvað meira en þeir eru við eitthvert tilefnið. Og Doug Harris (Josh Gad) er einmitt í þeim sporum. Sjálfum sér til mestrar furðu hefur draumastúlkan hans, hún Gretchen, játað bónorði hans. Vandamálið er hins vegar að Josh á enga vini og óttast að tilvonandi tengdaforeldrar hans muni af þeim sökum ekkert lítast á hann í væntanlegu brúðkaupi þeirra Gretchen. Hann leitar því á náðir Jimmys um að mæta í brúðkaupið sem svaramaður hans og besti vinur og helst að redda fleiri mönnum í vinahópinn. Og Jimmy tekur áskoruninni ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir
Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur
















