Chappie
2015
Frumsýnd: 6. mars 2015
Humanity's last hope isn't human.
120 MÍNEnska
32% Critics
56% Audience
41
/100 Chappie gerist í náinni framtíð þegar lög- og hergæslu er sinnt af öflugum
vélmennum sem fylgja skipunum yfirvalda út í hörgul og hiklaust.
En eitt vélmennið er öðruvísi. Það er mannlegt. Það er Chappie.
Ungur forritari sem komist hefur yfir eldri tegund af löggæsluvélmenni
ákveður að forrita það upp á nýtt með
þeim eiginleikum að vélmennið geti... Lesa meira
Chappie gerist í náinni framtíð þegar lög- og hergæslu er sinnt af öflugum
vélmennum sem fylgja skipunum yfirvalda út í hörgul og hiklaust.
En eitt vélmennið er öðruvísi. Það er mannlegt. Það er Chappie.
Ungur forritari sem komist hefur yfir eldri tegund af löggæsluvélmenni
ákveður að forrita það upp á nýtt með
þeim eiginleikum að vélmennið geti bæði hugsað, talað
og lært eins og manneskja. Forritunin heppnast, en um
leið og yfirvöld komast að þessu verður fjandinn laus því
þau óttast að vélmenni sem tekur eigin ákvarðanir geti
markað upphafið að endalokum mannkyns. Þau ákveða því að eyða
Chappie, eins og vélmennið heitir, sem allra fyrst og koma um leið í veg
fyrir að martröð þeirra verði að veruleika. En kannski er það of seint ...... minna