Monster High: Freaky Fusion (2014)
Monster High: Geggjaður glundroði
"Nýtt og skemmtilegt ævintýri með stelpunum úr Monster High"
Stelpurnar í Monster High-skólanum eru engar venjulegar stelpur heldur vampírur sem lenda í ótal skemmtilegum og spennandi ævintýrum.
Öllum leyfðSöguþráður
Stelpurnar í Monster High-skólanum eru engar venjulegar stelpur heldur vampírur sem lenda í ótal skemmtilegum og spennandi ævintýrum. Teiknimyndaserían um stelpurnar í Monster High-skólanum sem byggð er á vinsælum dúkkum frá leikfangafyrirtækinu Mattel hefur slegið í gegn hjá krökkum víða um lönd, enda afar vel gerð, skemmtileg, hæfilega spennandi og inniheldur góðan boðskap um eilífa vináttu og ást! Hér lenda stelpurnar í nýjum ævintýrum þegar þær ferðast aftur í tímann til þess dags þegar Monster High-skólinn var stofnaður. Þar hitta þær hinn sérkennilega Sparky sem hefur það að áhugamáli að búa til nýtt líf. En þegar Sparky fylgir stelpunum til baka aftur til dagsins í dag og heldur þar áfram tilraunum sínum fer eitthvað úrskeiðis með þeim afleiðingum að átta af stelpunum renna saman og verða fjórar. Þetta á eftir að skapa mörg vandamál, bæði fyndin og spennandi!
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Myndir
Bakgrunnsmyndir
Plaköt
Framleiðendur
















