The Kidnapping of Michel Houellebecq (2014)
Ránið á Michel Houellebecq, L'enlèvement de Michel Houellebecq
Árið 2011 fóru í gang sögusagnir um að franska rithöfundinum Michel Houllebecq hefði verið rænt.
Söguþráður
Árið 2011 fóru í gang sögusagnir um að franska rithöfundinum Michel Houllebecq hefði verið rænt. Það reyndist ekkert til í þessum sögum – hann átti bara í vandræðum með nettenginguna heima hjá sér. En þetta varð hins vegar kveikjan að leikinni mynd þar sem þrír mannræningjar ræna Houllebecq – og leikur rithöfundurinn sjálfan sig í myndinni. Á meðan hann er í haldi mannræningjana tekst með þeim ágætis vinskapur og þeir ræða saman ljóðlist, helförina og ævisögu H.P. Lovecraft á milli þess að mannræningjarnir kenna rithöfundinum ýmislegt um líkamsrækt og bardagaíþróttir. Allir leikarar myndarinnar eiga það sameiginlegt með Houllebecq sjálfum að vera ekki atvinnuleikarar – og allar senur myndarinnar urðu til sem spuni.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir
Myndir
Plaköt
Framleiðendur

Verðlaun
Myndin vann verðlaun fyrir besta handrit á Tribeca kvikmyndahátíðinni.








