Náðu í appið
Amy

Amy (2015)

"The girl behind the name. / Tímamótakvikmynd um harmþrungið ferðalag"

2 klst 8 mín2015

Heimildarmynd um söngkonuna Amy Winehouse, sem lést af alkóhóleitrun árið 2011.

Rotten Tomatoes96%
Metacritic85
Deila:
Amy - Stikla
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:VímuefniVímuefniBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2

Söguþráður

Heimildarmynd um söngkonuna Amy Winehouse, sem lést af alkóhóleitrun árið 2011. Einstök heimildarmynd um Amy Winehouse, æskuár hennar og fjölskyldulíf, ferilinn, tónlistina, vinina og það sem dró hana til dauða. Amy Winehouse var einstök listakona sem lést langt um aldur fram þann 23. júlí 2011, aðeins 27 ára að aldri. Þessi einstaka heimildarmynd um hana og líf hennar er gerð af kvikmyndagerðarmanninum Asif Kapadia sem m.a. gerði árið 2011 hina margverðlaunuðu mynd Senna, um brasilíska kappakstursmanninn Ayrton Senna. Eins og hún hefur Amy hlotið frábæra dóma gagnrýnenda og þykir varpa einstaklega skýru ljósi á líf þessarar merku listakonu sem söng sig inn í hjörtu allra sem á hana hlýddu.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

On the Corner FilmsGB
Globe ProductionsGB
Film4 ProductionsGB

Verðlaun

🏆

Óskarsverðlaun sem besta heimildarmynd.