Náðu í appið
Gagnrýni eftir:



A Knight's Tale
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Ótrúlega flott mynd! ég fór að sjá hana á frumsýningu og ég hreinlega vissi ekki við hverju ég átti að búast! Ég skellti mér nú samt og ég sá ekki eftir því! Þessi mynd hafði nánast allt! Flotta hetju, flottan vondan kall, spennu, rómantík, hugrekki, húmor, skemmtilegan söguþráð og flotta myndatöku. Heath Legder var einstaklega flottur sem hinn fátæki wannabe riddari, hann á bjarta framtíð fyrir sér sem leikari og ekki skemmir fyrir að hann er mjög myndarlegur!! Vinir hans í myndinni voru hrein snilld og ótrúlega fyndnir. Gellan í myndinni er voða sæt en það vantar kannski aðeins upp á hæfileikana en það reddast svosem alveg. Burtreiðarsenurnar voru ekkert smá flottar og fléttan af nútímatónlistinni og nútímatalinu inn í gamaldasgsumhverfi eru savolítið skrýtin fyrst en með opnum huga verður það bara flott!! Ég mæli sterklega með þessari mynd fyrir allsherjarskemmtun!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei