Gagnrýni eftir:
Maid in Manhattan0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Ég var svo heppin að sjá maid in manhattan nokkrum dögum áður en
hún var frumsýnd í bandaríkjunum :)
Hún kom skemmtilega á óvart og ég mæli óspart með henni.
Myndin fjallar um konu sem er þerna á stóru hóteli í New York
og einn dag kemur inn myndarlegur og ríkur gestur sem hún fellur
alveg kylliflöt fyrir. Sonur hennar fer með henni í vinnuna og hittir þennan myndarlega gest í lyftuni á hótelinu einn daginn og hann er staðráðinn í að koma þeim saman.
Ef þið viljið vita meira er um að skella sér á þessa frábæru gamanmynd þegar hun kemur til sýninga hér á landi.
Takk Fyrir.

