Náðu í appið
Gagnrýni eftir:



Finding Nemo
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Þetta er ein besta teiknimynd sem ég hef séð! Hún fjallar um fisk sem er að leita að syni sínum sem var tekinn til Ástralíu og á leiðinni hittir hann Dori sem er furðulegur fiskur með skammtímaminni. Myndin er krúttleg, sorgleg og mjög fyndin og ég hef séð hana oftar en 10 sinnum! Ég mæli með þessari mynd fyrir alla!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
The Lord of the Rings: The Return of the King
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Þriðja og síðasta Lord of the rings myndin! Þessi mynd er mjög góð og prýðir allt sem góðar myndir þurfa að hafa! Hún er fyndin, spennandi, ógeðsleg og þó hún sé svona löng finnur maður ekkert fyrir því! Ég á fyrstu tvær myndirnar og ég mun pottþétt kaupa mér þessa! Myndin er mjög vel gerð og vel leikin og hún er ekkert síðari en hinar, sem eru líka bara snilldarmyndir!

Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Elf
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Þegar ég fór á Elf bjóst ég við einhverri barnalegri jólasveinamynd sem ég hefði ekkert gaman af. En þessi mynd er æðislega fyndin og Will Ferrel fer á kostum sem Buddy, the elf! Buddy fer af Norðurpólnum þegar hann kemst að því að hann er ekki alvöru álfur, heldur var hann ættleiddur af jólasveininum. Hann fer að leita föður síns sem er giftur annari konu og á annan son. Pabbi hans er ekki góður maður og hugsar ekki um annað en um að græða peninga! Buddy fær vinnu í jóladeild í verslunarmiðstöð og verður þar ástfanginn! En er samt álitinn stórfurðulegur! Þetta er æðisleg jólamynd og allir ættu að sjá hana!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Pirates of the Caribbean: The Curse of the Black Pearl
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Ég er búin að fara tvisvar á The Pirates of the Caribbean í bíó og ég ætla að kaupa mér hana ef hún kemur út á DVD því þetta er ein besta og flottasta mynd sem ég hef séð. Tæknibrellurnar eru geggjaðar og leikararnir eru mjög góðir og þar ber Johnny Depp af sem Jack Sparrow. Söguþráðurinn í myndinni er mjög góður og manni er haldið spenntum alla myndina! Þegar ég fór fyrst á hana bjóst ég ekki við að þetta væri fyndin mynd en ég gjörsamlega grenjaði úr hlátri eins og flestir í salnum. Þetta er eina vel heppnaða sjóræningja mynd sem ég hef séð og ég mæli mikið með henni. Þeir sem hafa ekki séð þessa mynd verða að drífa sig í bíó!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Sinbad: Legend of the Seven Seas
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Þó það hljómi frekar illa að segjast hafa verið að sjá Sinbað Sæfara þá er þetta æðisleg mynd! Myndin er um Sindbað Sæfara (sem Brad Pitt talar fyrir) sem er sjóræningi og hann lendir svo í því að hjálpa Eris, gyðju eyðileggingar, í að ná Friðarbókinni sem Eris ætlar að nota til illverka. Til að bjarga svo lífi gamals vinar síns þarf Sinbað að reyna að stela bókinni frá Eris, sem hann ætlaði ekki að gera, en unnusta vinar hans(sem Catherine Zeta-Jones talar fyrir) læðist um borð í skipið og býður Sinbaði demanta fyrir að gera þetta og þá slær hann til. Ferðin er erfið því Eris reynir eins og hún getur að eyðileggja fyrir þeim. Myndin er sprenghlægileg og ég var að þurka tárin úr augunum eftir flest atriðin! Þetta er mjög vel gerð og flott mynd sem ég sé ekki eftir að hafa farið á. Fyrir þá sem finnast Monsters Inc., Ice age og Aladdin þá verða þeir að sjá hana! Ég bjóst ekki við að segja þetta en ég mæli með þessari æðislegu mynd!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Hollywood Homicide
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Þetta er bara mjög góð mynd með góðum leikurum. Maður er ekki vanur að sjá Harrison Ford í grínmyndum en hann lék þetta mjög vel. Myndin er svona allt í lagi fyrst en húmorinn kemur eiginlega í ljós þegar myndin er hálfnuð og þá getur maður svo hlegið! Þetta er svona alvarleg grínmynd en Harrison Ford bjargar henni en Josh Hartnett leikur þetta líka ágætlega. Ég mæli með þessari mynd fyrir þá sem eru ekki of dómharðir því þetta er annað en maður býst við!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Bruce Almighty
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Bruce Almighty er ein af þessum myndum sem öll fyndnu atriðin eru sýnd í trailernum og það skemmdi myndina. Ég hló eiginlega ekkert yfir henni því ég var búin að sjá trailerinn svo oft að ég var eiginlega komin með leið á flestum atriðunum en ég grenjaði samt úr hlátri yfir einu atriðinu og ef það hefði ekki verið þá hefði ég bara gefið myndinni eina og hálfa stjörnu. Ég bjóst eiginlega við skemmtilegri mynd og þeir sem hafa ekki séð hana ættu að bíða þangað til hún kemur út á spólu!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Darkness Falls
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Að mínu mati er þetta bara mjög góð mynd með ágætum söguþræði og ágætis leikurum. Þetta er ekkert ógeðsleg mynd en hún er voða spooky og gengur aðallega út á það að bregða fólki, sem tókst mjög vel! Maður vissi alveg hvenær Matilda myndi koma og þá stressaðist maður upp! Ég fór með vinkonum mínum á hana og eftir myndina var ég að drepast í hendinni því við vorum svo skíthræddar og ein vinkona mín öskraði í tvem atriðum og hún var ekki sú eina í salnum sem gerði það, því fyrir ofan okkur sátu stelpur sem öskruðu í hverju atriði. Ég mæli með þessari mynd fyrir þá sem eru ekki að eltast við ógeðslega hryllingsmynd því það er myndin alls ekki!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
American Wedding
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Þetta er að mínu mati besta og fyndnasta American Pie myndin því þetta er bara klassík! Stifler er mjög stórt hlutverk í þessari mynd og hann er ekkert nema snilld! Ég hló miklu meira af þessari mynd heldur en hinum tvem myndunum og ég hélt að það væri ekki hægt að toppa það. Eitt besta við myndina eru Stifler og Finch sem skipta um hlutverk til að heilla Cadence, systur Michelle, en Stifler heillar mömmu hennar meira því hann setur sig í hlutverk tengdasonarins sem allar mæður dreymir um! Þetta er æðisleg mynd sem ég mæli með fyrir alla!
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei