Náðu í appið
Gagnrýni eftir:



The Core
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Hvað getur verið betra en setningin The Core has stopped spinning ..., kannski The only way out is in. Húrra! fyrir að gera bestu grínmynd ársins Jon Amiel.

Þegar ég fór að sjá The Core áðan hafði ég ekki miklar vonir um að hún væri góð, eiginlega bara engar. Myndin olli mér ekki vonbrigðum hún var vond. Hefst þá reiðilesturinn:

Tölvuteiknunin sum hver var það slæm að 10 ára frændi minn hefði farið létt með að gera betur í 3D Studio Max

Tónlistin var hlægileg. Hún var OF dramatísk, í stað þess að auka tilfinningarnar í atriðinu gerði hún atriðið hlægilegt.

Fræðar myndarinnar styðjast ekki við beztu eðlisfræði kunnáttu heimsins, og svo var handritið ekkert til að hrópa húrra fyrir.

Myndatakan var stundum til skammar. Dæmi: Í atriði þar sem fólk er að flýja undan ... heldur einn karkterinn á DV-myndavél sem er klippt yfir á hér og þar í atriðinu. Þetta átti að sýna einhvurskonar múgæsingu en var bara hræðilegt.

Maður vissi strax í byrjun hvurjir mundu lifa ferðina af, og almennt séð var myndin mjög fyrirsjáanleg

Áhugavert að engin sérstök ástarsaga var ofin inn í fléttuna eins og í flestum öðrum svipuðum myndum (Pearl Harbour, Armageddon). En engu að síður tókst að vefa inn sögu gamalla vina sem voru orðnir óvinir, sögu um valdabaráttu og sögu um manneskju sem þarf að sanna sig fyrir sér sjálfri.

Reiðilestur hættir.

Ég bjóst við mjög lélegum leik en raunin var sú að leikurinn var almennt ágætur.



Lokaorð:

Ef þú hefur gaman af myndum sem vilja vera dramatískar/heimsenda- myndir en enda sem klúður sem hægt er að hlæja að er þetta myndin fyrir þig. Annars ekki.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
The Lord of the Rings: The Fellowship of the Ring
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Það verður að viðurkennast, og gerir það ljúflega, að LOTR1 er mjög góð mynd, skemmtileg og vel gerð. Þó er myndin ekki án galla.

Ég er búinn að sjá myndina tvisvar.

Strax í fyrra skiptið tók ég eftir því að tæknibrellurnar, sem hér hafa verið lofaðar í hástert, voru almennt mjög góðar en þó var á um það bil 4-5 stöðum í myndinni sem ekki hafði verið gáð nægilega vel að því að gæta samræmis milli forgrunnar og bakgrunnar, einnig var í einu samtali Frodo og Gandalf á Bag End galli á samsetningu þegar báðar persónurnar voru í mynd í einu (þar sem það er tekið upp í tvennu lagi vegna stærðarmunar persónanna). Að öðru leiti voru brellurnar til fyrirmyndar og hefðu sómað sér með stakri prýði í mynd sem hefði eigi verið jafn grandskoðuð og þessi.

Ég hef ekki lesið bækurnar og var því ekki fullkomlega kunnugur sögunni þegar ég sá myndina í fyrra skiptið en tók eftir því að sagan sjálf hentar ekki vel til frásagnar í A-mynd, þar sem ferðalagið skiptir bara OF miklu máli, þó komast handritshöfundarnir mjög vel frá því og eigi hrós skilið.

Í seinni umferð sá ég hvurnig sett eru af stað mörg plott (um það bil tíu eða fleiri) sem eru ekki kláruð (gott dæmi er ástarsamband Aragorns og Álfaprinsessunnar) þótt þessi plott verði kláruð í síðari myndum og ekki verði hjá þessu komist er þetta eitt af einkennum B-myndar.

Hér dró ég fram hina slæmu þætti myndarinnar sem er smávægilegir þegar litið er á heildarmyndina af myndinni. Myndinni til sérstaks hróss vil ég nefna leik Elijah Wood sjaldan hefi ég séð annan eins snildar leik, að maður tali nú ekki um hjá jafn lítilreyndum leikara, aðrir leikarar standa sig einnig vel, tónlistin sómar sér vel og allir aðstandendur eiga hrós skilið.

Að lokum vil ég segja að mér fannast myndin stórkostleg og fjærri því að vera B-mynd, hún er ein af fjórtán beztu myndum sem ég hefi séð. ég vildi bara aðeins hrista upp í mönnum og vekja til umhugsunar.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei