Náðu í appið
Gagnrýni eftir:



Honey
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Honey er mjög skemmtileg dansmynd fyrir alla, hvort sem þeir hafa sérsaklega gaman af dansi eða ekki. Myndin fjallar Honey Daniels (Jessica Alba) sem er hiphop danskennari í félagsmiðstöð, auk þess sem hún vinnur í plötubúð og á næturklúbbi. Honey er mjög góður dansari og danshöfundur og eitt kvöldið þegar hún er að dansa á næturklúbbi er hún uppgötvuð af Micheal Ellis, frægum tónlistarmyndbandaleikstjóra. Eftir það liggur leiðin fljótt uppá við, þar sem Honey fær vinnu við að dansa í og semja dansa við myndbönd Ellis og myndböndin slá í gegn. En með tímanum uppgötvar hún að ekki er allt sem sýnist hvað varðar frægðina og að hana dreymir um margt fleira en að verða fræg.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei