Gagnrýni eftir:
House of Wax0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg
Fín mynd mæli samt ekki með henni fyrir viðkvæma, hún fjallar um 6 krakka sem ætla fara á einhvern leik sem er í New York og þegar þau eru búin að keyra frekar lengi ákveða þau að tjalda á einhverju túni. Þegar þau vakna daginn eftir er bíll annars stráksin ónýtur og þau þurfa að fara og finna bensínstöð sem selur aukahluti í bílinn. Þau rekast svo á mann þarna og býðst hann til að skutla einu parinu á meðan hinir krakkanir ætla á leikinn en svo er búið að flæða yfir veginn svo þau labba það sem eftir var og maðurinn fer. En í þessum bæ búa menn sem já hugsa ekki um neitt annað en að búa til vaxstyttur. Fínn leikur en ég er sammála um að Paris Hilton leikur alveg hræðilega.

