Náðu í appið
Gagnrýni eftir:



The Count of Monte Cristo
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

MORÐ, SPILLING, SVIK, GRÆÐGI, ÁST og HEFND hafa verið um margra áratugaskeið drifkraftur flestra Bandarískra kvikmynda, en oftar en ekki hafa tilraunir kvikmyndaframleiðanda til þess að toga inn áhorfendur ekki virkað nægilega vel eða bara einfaldlega fallið. Þessi mynd um greifan af Monte Cristo virðist hafa staðist mínar kröfur um afþreyjingu og skemmtun. Hún er vel upp byggð, vel skrifuð og leikstýringinn nær að skila kröftugu sjónarspili búninga, umhverfis og leiks. Myndinn náði góðu flugi sem heldur sig út mestmegnis af myndinni en byrjar að falla þegar að endalokunum kemur, en þá fellur myndinn niður í dramatíska Hollywood gryfju sem svo margar aðrar góðar myndir gera. En, engu síður, var ég nokkuð ánægður með hana og sé ekki eftir dýrmætum aurum erfiðs vinnudags í hana.

Handritið var flott; vel skrifað, ekki vikið mjög langt frá bókinni og skemmtilega uppbyggt.

Ég get ekki kvartað undan leiknum heldur.. allaveganna ekki mjög mikið. Guy Pierce var með eindæmum góður í hlutverki sínu, þótt leikurinn hafi skiljanlega ekki verið tilnefndur til óskarsverðlauna. Hann skilar sínu hlutverki vel af sér þrátt fyrir staka ofleik en hann nær samt aldrei að blómstra sem vondi kallinn í myndinni. James Caviszel er allt í lagi, ekki vondur, alls ekki slæmur, en skortir reynslu. Hann má eiga það. En samt, karakterinn hans, Dante, kemur mjög grunnur út í byrjun á myndinni og látinn vera svoldið sljór. En, aftur á móti, breytist hann aðeins með myndinni og nær að virkja heilann á meðan dvölinni í D´if á stendur. Dagmara Domincyk virðist vera að sækja veðrið í glamúrborginni og ná alltaf í bitastæðari hlutverk með hverri mynd sem hún leikur í. Hún er svona eins og Cameron Diaz, byrjar í einni mynd og verður betri og trúverðugri með hverri mynd eftir það. Óopnuð rós í hafsjó túlipana.

Ég mæli með myndinni við hvern þann sem hefur gaman af ævintýrum, svikum og spennu. Jafnvel þótt að þetta sé engan veginn plott mynd í líkingu við The Game eða Fight Club má vel sjá af 800 krónum í hana. Semsagt, ágætis ævintýra mynd með sæmilegri framvindu og nice spennu. Nú er bara að brjóta upp sparibaukinn hjá litla bróður (eða systur..) og skella sér í bíó til að mynda eigið álit á The Count Of Monte Cristo.

Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Thir13en Ghosts
0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Ég er kannski skrítinn, en til þess er athvarf svo margra ungmenna notað: kvikmyndir.

13Ghosts var áhugaverð að mörgu leiti; Hún byrjar vel, nær að halda sér vel á lofti fram yfir fyrri helminginn en dalar verulega þegar sígur á endann.

Margir fullkomlega góðir leikarar koma að gerð þessarar myndar og stendur F. Murray Abraham hvað mest upp úr, (verst að eina syndinn við þessa mynd er sú hve lítið hann er í henni). 13 Ghosts er fjarri því að vera týpísk hrollvekja á Hollywood staðlinum. Í henni er að finna vott af frumleika, sem skýrir stjörnufjöldan hjá mér, sem er, því miður, ekki nógu góð afsökun til þess að hlaupa út í bíó, þegar hún kemur, og láta af hendi rakna 800kr fyrir þunnri mynd með eitthvað skemmtanagildi.

Myndinn spilar mikið inn á sálfræðina hjá hverjum og einum sem sér hana: t.d er innilokunarkennd og hræðsla við rúmlítil pláss einna helst stærsti drifkrafturinn í söguþræðinum og nær að halda sæmilega vel í SCREAM/I KNOW WHAT YOU DID.. þyrstu áhorfendurnar sem botna þær myndir. En, aftur á móti, væru ákkúrat þeir eimmit líklegastir til að skjóta þessa mynd hvað mest niður, þar sem frumleikinn er helst til of mikill.

Þrátt fyrir að vera mjög góð hugmynd og einstaklega flott pæling, mun þessi mynd aldrei ná að lenda á top1000 listanum yfir bestu Hollywood A-B myndirnar.. Allt í lagi mynd og er allveg ágætis afþreyingar efni. 2og1/2 stjarna

Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei